27. nóvember 2009
Gaman að kenna í Akurskóla
Af mér og mínum er allt gott að frétta. Allir hafa nóg að gera og allir hafa sett ákveðin markmið. Bryndís að ljúka stúdentsprófum, Brynja að ljúka förðunarfræði og Sigurbergur er að verða hálfnaður með 5.bekk.
Jökull ömmustrákurinn byrjaði að ganga í gær og er að rifna úr stolti.
31. mars 2009
Foreldrar skipta öllu máli
Sagt er: Foreldrafélög eru orðin lögbundin
Í nýjum heildstæðum lögum um leik-, grunn- og framhaldsskóla skapast ný tækifæri til eflingar menntunar á Íslandi og hefur aðkoma foreldra um leið verið stóraukin. Ný skólaráð komu í stað foreldra- og kennararáða og foreldrafélög eru orðin lögbundin.
Sagt er: Foreldrar skipta sköpum fyrir árangur barna sinna í námi.
Í Reykjanesbæ er gott foreldrastarf. Foreldrafélög grunnskólanna sameinast í eitt félag, FFGÍR. FFGÍR fundar reglulega og vinnur að góðum verkum og ályktar um mál er varða velferð nemenda.
Vinna með nemendur er sameiginlegt verkefni foreldra og starfsfólks skóla. Þar sem ég þekki vel til, í Njarðvíkurskóla og Heiðarskóla, standa dyrnar opnar og foreldrar eru ávallt velkomnir í tíma til barna sinna eða til að hitta starfsfólk.
Sagt er: Börn eru vön foreldrum í skólanum
Það er lítil truflun þegar foreldri kemur í 4-5. bekk í Njarðvíkurskóla. Börnin eru vön að sjá einstaka foreldra kíkja við. Foreldrar ættu að vita hvaða börn eru í sama kennslurými og hvernig barnið tengist öðrum börnum. Foreldrar hafa uppgötvað að barnið á enga vini og því líður illa. Þá er gott að þekkja aðra foreldra og kennara barnsins og snúa ástandinu til betri vegar.
Foreldrar þekkja börnin best og gera kraftaverk við úrlausn vandamála og stuðning við kennarann. Foreldri ber ábyrgð. Foreldri þekkir skólastofu barnsins, kennarana og annað starfsfólk. Foreldri mætir á hátíðsdögum, fylgist með heimanámi, finnur tómstundir og leikfélaga. Foreldri útbýr nesti, kaupir hádegismat, hugsar um fatnað og heilsu barnsins og svona mætti lengi telja.
Sagt er: Foreldrar mæta þegar þeim er boðið
Foreldrar eru mjög duglegir að mæta á hvers kyns uppákomur í skólanum eins og árshátíðir, vorskemmtanir, foreldraviðtöl og sýningar hvers konar. Þannig fá þeir tækifæri til að koma inn í skólann á góðum dögum og hitta aðra foreldra og starfsfólk skólans.
Árshátíð er skemmtun fyrir alla fjölskylduna, skólasetningin einnig og skólaslit. Það er ánægjulegt að sjá stórfjölskylduna, ömmur, afa, frænkur og frænda fylgja sínu barni á árshátíð og njóta dagsins með því. Hátíðlegt og skemmtilegt.
Sagt er: Góð samskipti, lykilatriði að velferð
Foreldrar og kennarar vita að fjölskyldan skiptir mestu máli í uppeldi barna. Börn þurfa að búa við félagslegt og tilfinningalegt öryggi, kærleika og ást. Hvort sem barnið á eina móður, tvær eða enga, einn, föður, tvo eða engan þá á barnið alltaf einhvern sem telst vera fölskylda þess. Sá aðili sem ber ábyrgð á velferð barns er fullorðin einstaklingur sem verður að axla ábyrgð og stuðla að góðum samskiptum við þá skólastofnun sem barnið sækir.
Sagt er: Feðurnir gegna veigamiklu hlutverki
Það er að koma upp kynslóð foreldra uppalinn í jafnrétti kynjanna og ber sameiginlega ábyrgð á velferð fjölskyldunnar. Fjölskyldan er sjaldan heima og börnin alast upp á stofnunum. Langir vinnudagar eru hjá börnum, jafnvel 9 klst. Foreldrahlutverkið er mjög krefjandi og ábyrgðarfullt starf sem ekki er hægt að skorast undan og vísa frá sér. Það krefst ýmissa fórna en gefur margfalt til baka, því líkur aldrei.
Sagt er: Foreldrahlutverkið er mikilvægast
Foreldrar hjúkra, leiðbeina og gæta barnanna. Foreldrar reyna að veita börnum sínum það félags-, fjárhags,- og tilfinningalega öryggi sem barn þarf. Á stofnunum fá börnin mikla örvun innan um vel menntað starfsfólk semkemur aldrei í stað foreldra. Foreldrar fylgja barni frá vöggu til fullorðinsára. Starfsfólk fylgir barninu frá A til B í nokkra mánuði eða ár. Foreldrar verða þess vegna að halda góðum tengslum við fagmenn sem barnið umgengst.
Sagt er: Foreldrafélög styðja við skólastarf og veita bjargir
Fyrstu foreldra- og kennarafélögin voru stofnuð á fimmta áratugnum. Síðan þá hefur þátttaka foreldra í skólastarfi verið fólgin í mætingu á íþróttamót, árshátíðir og fræðslufundi sem gjarnan eru haldnir í samvinnu við foreldrafélög.
Sagt er: Foreldra fá upplýsingar um skólastarfið - heimasíður gagnlegar
Greið og örugg boðskipti milli heimila og skóla er einn af grundvallarþáttum nútíma skólastarfs. Skólarnir veita foreldrum upplýsingar um starfsemi sína t.d. með virkum heimasíðum, fréttabréfum, skóladagatali og samskiptabókum.
Sagt er: Gagnkvæm miðlun milli foreldra og skóla er mikilvæg
Gagnkvæm miðlun milli foreldra og skólans er mikilvæg; foreldrafundir, foreldraviðtöl, símatímar, eru til að ræða við foreldra einslega eða í stærri hópum. Kennarar afla upplýsinga hjá foreldrum um aðstæður nemenda til að geta mætt þörfum þeirra sem best.
Algeng gagnrýni á slík samskipti er að lítið komi út úr þeim í reynd. Kennarar hafa tilhneigingu til að ræða almennt um gengi nemenda og veigri sér við að taka á viðkvæmum vandamálum.
Foreldrarhlutverkið má aldrei vanmeta, hvorki af fagmönnum né foreldrum sjálfum. Á heimasíðu Heimilis og skóla stendur: „Góð tengsl heimilis og skóla hafa sennilega aldrei verið jafn mikilvæg og nú um stundir. Á undanförnum árum hefur skóladagur barna lengst verulega og ýmsir þættir, eins og t.d. tómstundastarf og skóladagvist, hafa tengst skólastarfinu. Uppeldishlutverk grunnskólans hefur þar með fengið meira vægi. Samstarf heimilis og skóla eykur skilning og þekkingu á báða bóga. Þannig er stuðlað að velferð barnsins en það ætti að vera meginmarkmið allra sem það varðar.“
13. mars 2009
Árelía Eydís og Gylfi Jón á opnum fundi

Á morgun verða "Kelfvíkingarnir" Árelía Eydís Guðmundsdóttir og Gylfi Jón Gylfason með sitthvort erindið á opnum fundi FFGÍR. Ég hitt feður þeirra beggja daglega á minni skólagöngu þar sem Gylfi var skólastjóri Njarðvíkurskóla og Guðmundur starfaði í íþróttahúsin og var með sundnámskeið (minnir mig).
... nema hvað... þau Árelía Eydís og Gylfi Jón ætla að vera með mjög áhugaverð erindi á morgun í húsnæði Virkjunar á Vallarheiði.
Árelía kl. 11:15 - 12:00 og Gylfi Jón kl. 13:00 - 14:00.
Kaffi á könnunni og súpa í hádeginu, strengjasveitir skemmta í hádeginu og barnaCospel kór kl. 11.
kl.10 sitja starfsmenn bæjarins fyrir svörum og vitum við að það brenna margar spurningar á vörum foreldra og íbúa Reykjanesbæjar sem er annt um hag barnanna í bænum.
10. mars 2009
Foreldrar fá svör
Félögin halda opinn fund til að fjalla um velferð barna í víðum skilningi, aðstæður þeirra núna og í framtíðinni. Félögin sameinast öll í eitt félag FFGÍR og hefur undirbúningur staðið yfir síðan í byrjun febrúar. Það er einvalalið foreldra sem ber hitann og þungann af skipulaginu.
Það er mikil tilhlökkun hjá foreldrum í foreldrafélögunum að taka á móti öllum sem vilja vera með, hlýða á góð erindi og jafnvel fá svör við spurningum. Þetta frábæra framtaka Foreldrafélaga og Foreldraráða Grunnskóla Reykjanesbæjar (FFGÍR) á vonandi eftir að veita aðstandendum barna og velvildarfólki innsýn í þær aðstæður sem við búum við í Reykjanesbæ.
Fulltrúar frá bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar ætla að sitja fyrir svörum, Árelía Eydís dósent við HÍ og Gylfi Jón Gylfason sálfræðingur flytja erindi. Foreldrar ætla að lokum að fjalla um leiðir til þess að huga að velferð barna hér í Reykjanesbæ.
Allir eru velkomnir, engin skráning, kostar ekki neitt.
