15. desember 2006

Aðventan gengin í garð

Ég nýt aðdraganda jólanna betur en jólanna sjálfra. Í gær bökuðum við mamma smákökur og lagtertur. Ég skrifaði síðan öll jólakortin sem eru komin yfir 100 talsins og alltaf bætist við frekar en hitt. Við erum búin að fara í tvö jólahlaðborð og eitt afmælisboð í desember. Aðventutónleikar á sunnudaginn og miðvikudaginn. Sigurbergur er mjög ánægður með jólasveinana og fer spenntur að sofa öll kvöld.
Stelpurnar komnar í jólafrí frá skólanum og eru ekkert að hugsa um að fá sér vinnu. Finnst voða gott að gera ekki neitt. Annars eru þær mjög uppteknar með vinum sínum og njóta þess að vera til.
kv, Inga